Coripharma og þýska lyfjafyrirtækið Midas Pharma GmbH hafa undirritað samning um samvinnu við framleiðslu og markaðssetningu á lyfjum til þriðja aðila. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Í tilkynningunni segir að með samvinnunni geti fyrirtækin nú boðið viðskiptavinum sínum samhæfðar lausnir sem auki skilvirkni í framleiðslu- og markaðssetningu á lyfjum sem þegar eru í sölu. Þá opni samningurinn möguleika á frekara samstarfi, meðal annars á sviði lyfjaþróunar. Vinna við eitt slíkt samstarfsverkefni sé nú þegar hafin.

Hjá Midas í Þýskalandi búi hópur fólks að áralangri reynslu og þekkingu á erlendum mörkuðum, en starfsfólk Coripharma í Hafnarfirði hafi flest um árabil unnið að framleiðslu og þróun á samheitalyfjum.

„Coripharma og Midas hafa unnið saman að mörgum verkefnum á síðustu mánuðum. Það er sérlega ánægjulegt að hafa nú undirritað formlegan samning um áframhaldandi samstarf til að veita viðskiptavinum beggja fyrirtækja enn betri þjónustu. Fyrir Coripharma þýðir þetta enn betra aðgengi að stærstu samheitalyfjamörkuðum Evrópu og víðar í gegnum öflugt sölunet Midas," segir Bjarni K. Þorvarðarson, forstjóri Coripharma.