Costco sem selt hefur eldsneyti við vöruhús sitt í Kauptúni í Garðabæ frá því áður en verslunin opnaði hefur samið við Skeljung um áframhaldandi þjónustu á eldsneytisafhendingu út næsta ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynnningu.

„Þjónustan við Costco hefur gengið vel í alla staði undanfarin ár, enda höfum við á að skipa öflugu teymi. Munum við halda áfram að þjónusta félagið á næsta ári með það að markmiði að gera ávallt betur,“ segir Hendrik Egholm, forstjóri Skeljungs.

Samkvæmt vefmiðlinum gasvaktin.is þá er verðið á bensínlíterinum hjá Costco 199,9 íslenskar krónur.