Daði Guðjónsson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu.
Daði Guðjónsson, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Daði Guðjónsson hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri hjá Íslandsstofu og mun, ásamt Guðrúnu Birnu Jörgensen, sjá um verkefnið Inspired by Iceland. Daði starfaði síðast sem markaðsstjóri Ferðaskrifstofu Íslands og hefur störf hjá Íslandsstofu um miðjan ágúst. Daði hefur áður starfað á auglýsingastofunni Kapital og sem útsendingastjóri hjá RÚV.