Engin leið er að spá fyrir um niðurstöðu landsdóms í málinu gegn Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra en dómur verður kveðinn upp á morgun.

Viðskiptablaðið fjallaði um málið í mars þegar vitnaleiðslur stóðu yfir en þá var það mat lögfróðra viðmælenda blaðsins að flest benti til þess að Geir yrði sýknaður af þeim fjórum ákæruliðum sem dómurinn fjallar um.

Ákæruliðirnir byggja á því að frá febrúar 2008 átti Geir að: 1) tryggja betri árangur af störfum og áherslum samráðshóps um fjármálastöðugleika, 2) hafa forystu um að minnka bankakerfið, 3) sjá til þess að Icesave-reikningar Landsbankans yrðu fluttir úr landi og 4) standa fyrir formlegum ráðherrafundum um stöðu fjármálakerfisins.

Eins og Viðskiptablaðið greindi í mars var lítið sem kom fram í máli vitna sem styður við ákæruliðina. Ef aðeins er horft til ákæruliðanna, eins og ber að gera í sakamálum, þá kom skýrt fram á meðal vitnanna að Geir hafði hvorki vald né ráð til þess að minnka bankakerfið né beita sér fyrir því að Icesave-reikningar Landsbankans yrðu fluttir úr landi.

Samráðshópurinn valdalaus

Hins vegar er öllu óljósara um hina tvo ákæruliðina, þ.e. störf samráðs- hópsins og ráðherrafundi um stöðu fjármálakerfisins. Rétt er að hafa í huga að samráðshópur um fjármálastöðugleika er eins og nafnið gefur til kynna aðeins til samráðs og upplýsingamiðlunar. Hópurinn hafði ekkert stjórnskipunarlegt vald og gat engar formlegar ákvarðanir tekið um aðgerðir, þó svo að einstaka aðilar innan hópsins hafi vissulega getað haft áhrif á aðgerðir sinna vinnustaða.

Viðmælendur Viðskiptablaðsins í mars töldu litlar líkur á sakfellingu fyrir að tryggja ekki betri árangur af störfum hóps sem á sér enga stoð í lögum. Hins vegar gætu formleg atriði komið Geir í koll, s.s. umhald og frágangur fundargerða af störfum hópsins. Viðmælendur Viðskiptablaðsins töldu að ef dómarar í Landsdómi vildu teygja sig mjög langt í formlegri túlkun laga þá geti slæmt utanumhald um störf hópsins flokkast sem liður í því að tryggja ekki árangur af störfum hans.

Ráðherrar misupplýstir

Að sama skapi töldu viðmælendur blaðsins að mögulega séu líkur á sakfellingu fyrir fjórða liðinn, þ.e. að hafa ekki staðið skipulega fyrir formlegum ráðherrafundum um stöðu fjármálakerfisins, þótt engin leið sé að spá fyrir um hvort það hefði komið í veg fyrir hrunið eða ekki.

Komið hefur í ljós að ráðherrar þáverandi ríkisstjórnar voru misupplýstir um stöðu mála og dómurinn gæti mögulega talið að það hafi verið alfarið á ábyrgð Geirs að upplýsa viðeigandi ráðherra um stöðuna. Viðmælendur Viðskiptablaðsins, sem allir eru hæstaréttarlögmenn, vildu ekki koma fram undir nafni þar sem hér er einungis um vangaveltur að ræða. Eins og fram kemur í upphafi er líklega engin leið að spá fyrir um niðurstöðu dómsins þó að flestir væru þeir sammála um að ákærurnar standi á veikum stoðum.