Dagsbrún hefur skrifað undir samning um kaup á öllu hlutafé í Securitas af Sjóvá, með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda og niðurstöður áreiðanleikakönnunar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Greitt verður fyrir hlutafé Securitas með hlutabréfum í Dagsbrún, samtals að nafnverði 421,7 milljónir króna. Ef gengi Dagsbrúnar er hærra en 7,5 í lok árs 2006 verður ekki um frekari greiðslur að ræða.
Viðbótargreiðsla getur þó aldrei orðið hærri en 632,3 milljónir króna en lækkar hlutfallslega frá genginu 6.
?Með þessum kaupum markar Dagsbrún þá stefnu að félagið sé ekki aðeins fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki heldur ætli sér að veita heimilum landsins víðtækari þjónustu. Í kjölfar kaupanna munu öflugir aðilar bætast inn í hluthafahóp Dagsbrúnar. Þessi viðskipti sýna því ekki aðeins trú okkar á Securitas heldur ekki síður trú þessara aðila á Dagsbrún," segir Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Dagsbrúnar.
Miðað er við að Securitas verði hluti af samstæðu Dagsbrúnar frá 1. janúar 2006.
Áætluð velta Securitas á árinu 2006 er 1.800 ? 1.850 milljónir króna. Áhrif fjárfestingarinnar á hagnað Dagsbrúnar fyrir fjármagnsliði og skatta eru áætluð á bilinu 280 ? 300 milljónir króna á yfirstandandi rekstrarári. Vaxtaberandi skuldir Securitas nema um 300 milljónum króna.
Fyrir liggur heimild stjórnar Dagsbrúnar til útgáfu 1.200 milljón nýrra hluta, en lögð verður fram tillaga á komandi aðalfundi félagsins þann 17. febrúar næstkomandi þess efnis að hluthafar falli frá forgangsrétti sínum til hlutafjáraukningarinnar.
Samhliða sölu á hlutabréfunum í Securitas hefur Sjóvá gert samning við Milestone um sölu á bréfunum í Dagsbrún þegar skilmálar viðskiptanna hafa verið uppfylltir.