Dalla Ólafsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri/lögfræðingur fjölmiðlanefndar. Hún hefur störf 1. júní næstkomandi.

Dalla Ólafsdóttir
Dalla Ólafsdóttir

Dalla lauk prófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2008 og B.A.- prófi í stjórnmálafræði frá sama skóla árið 2002.

Dalla hefur frá árinu 2009 starfað sem lögfræðingur hjá ASÍ. Hún hefur verið formaður yfirkjörstjórnar Kópavogs frá árinu 2010 og starfaði sem lögfræðingur hjá Samkeppniseftirlitinu að loknu lagaprófi og fram á mitt ár 2009.

Í tilkynningu frá fjölmiðlanefndinni kemur fram að alls hafi 35 umsóknir borist um starfið. Þrír umsækjendur hafi ákveðið að draga umsókn sína til baka.

Dalla er dóttir Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, og Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur.