Dohop-vefsíðan  hefur komist á lista Times Online  yfir bestu ferðasíðurnar. Íslenska fyrirtækið Dohop gerir notendum kleift að leita eftir flugferðum ókeypis á netinu á síðunni dohop.com. Dohop er af Times talin vera í hópi hundrað bestu ferðasíðna á netinu og mælir Times sérstaklega með síðunni. Farið var eftir útliti, notkunarmöguleikum og skilvirkni síðunnar í valinu. " Dohop er ótrúlega góð síða sem bíður manni hratt og vel upp á verðsamanburð á flugum víðsvegar að um heiminn. Dohop gerir ferðalöngum greiðara um vik að ferðast um heiminn," segir í umsögn Times um Dohop.

Frosti Sigurjónsson forstjóri Dohop er að vonum ánægður með viðurkenninguna. "þessi viðurkenning mun hjálpa okkur við útbreiðslu síðunnar," segir hann í tilkynningu.