Vefur íslenska fyrirtækisins Dohop hefur verið tilnefndur „Besti flugleitarvefur heims,“ (e. World's Leading Flight Comparison Website 2016) af World Travel Awards. Dohop vann verðlaunin 2014 og tilnefningin núna markar fjórða árið í röð sem fyrirtækið er tilnefnt. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Dohop.

Dohop hlaut einnig tilnefningu sem Besta tæknilausnin í ferðaiðnaðnum. Með tilfeningunni er því Dohop í hópi stærstu fyrirtækja heims í ferðageiranum sem tilnefnd eru hvert í sínum flokki; fyrirtæki á borð við Lufthansa, Hertz, Hilton og Expedia. Dohop er eina íslenska fyrirtækið sem tilnefnt sem hefur verið til lokaverðlauna World Travel Awards.

Haft er eftir Davíð Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Dohop að það sé frábært fyrir fyrirtækið að fá slíka viðurkenningu, hvað þá í tveimur flokkum. Hann bendir einnig á að þetta sé fjórða árið í röð sem að Dohop sé tilnefnt sem besta flugleitarvél í heimi.