Í samræmi við lög breytist heiti dóms- og kirkjumálaráðuneytisins í dag, 1. október 2009, í dómsmála- og mannréttindaráðuneytið og aukin áhersla verður lögð á verkefni á sviði lýð- og mannréttinda.

Einnig koma til framkvæmda nokkrar breytingar á verkefnum ráðuneytisins er það tekur við forræði yfir sveitarstjórnarkosningum, fasteignamati og skráningu auk þess sem neytendamál færast til ráðuneytisins.

Þetta kemur fram í vefriti ráðuneytisins en þá mun dómsmála- og mannréttindaráðuneytið framvegis hafa yfirumsjón með málefnum er varða mansal.

Umsjón laga um prentrétt flyst hins vegar frá ráðuneytinu til mennta- og menningarmálaráðuneytis en kirkjumál verða áfram á forræði ráðuneytisins þó að heiti þess breytist.

Sjá nánar í vefriti dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins.