Skáldsagan Draugaslóð eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur hefur verið tilnefnd til Barna- og unglingabókaverðlauna Vestnorræna ráðsins árið 2008 af íslensku dómnefndinni. Í tilkynningu frá Vestnorræna ráðinu segir að í rökstuðningi dómnefndar komi meðal annars fram, að Draugaslóð sé óvenju auðug saga að líflegum og sterkum persónum sem lesendur trúi á og verðugum viðfangsefnum. Sagan sé flókin í uppbyggingu en höfundur haldi vel um alla þræði. Síðast en ekki síst sé sagan einstök fyrir það hversu fimlega höfundur flétti inn í hana íslenskan þjóðsagnaarf.

Í tilkynningu segir að grænlenska dómnefnd verðlaunanna hafi tilnefnt barnabókina Abct eftir Julie Edel Hardenberg. Dómnefnd Færeyja hafi tilnefnt bókina Apollonia sem Edward Fulgø hafi bæði ritað og myndskreytt.  Barna- og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins verða veitt einni þessara bóka í ágúst 2008 og hlýtur verðlaunahafinn rúmlega 600.000 íslenskar krónur (60.000 danskar krónur).

Verðlaunin eru veitt annað hvert ár og er þetta í fjórða skipti sem bækur eru tilnefndar til þeirra. Valið fer þannig fram að í desember, árið áður en verðlaunin eru veitt, tilnefna dómnefndir landanna eina bók hver frá sínu landi. Vestnorræna dómnefndin velur síðan eina af þessum bókum sem svo hlýtur verðlaunin í ágúst árið eftir.

Árið 2002 hlaut bókin Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason verðlaunin, árið 2004 bókin Engill í vesturbænum eftir Kristínu Steinsdóttur og Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur og árið 2006 hlaut færeyska bókin Hundurinn, kötturinn og músin eftir Bárð Oskarsson verðlaunin, en hún er nú komin út í íslenskri þýðingu.

Íslensku dómnefndina skipa bókmenntafræðingarnir Silja Aðalsteinsdóttir formaður, Ármann Jakobsson og Anna Heiða Pálsdóttir.