Inga María Guðmundsdóttir.
Inga María Guðmundsdóttir.
© Edwin Roald Rögnvaldsson (VB Mynd/Edwin)

Hagnaður Dress Up Games ehf. var rúmlega 46 milljónir á síðasta ári, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins. Eigandi félagsins er Inga María Guðmundsdóttir, sem á og rekur vefsíðuna dressuppgames.com. Á vefsíðunni er að finna samansafn tengla á tölvuleiki þar sem dúkkulísur eru klæddar í föt.

Síðan nýtur mikilla vinsælda og hefur félagi Ingu Maríu vegnað vel. Heimasíðan fær milljónir innlita og er með tugmilljónir flettinga í hverjum mánuði. Félagið er með auglýsingasamning við Google og fær greitt fyrir hvert skipti sem einver skoðar tilteknar auglýsingar sem birtast á síðunni.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér að ofan.