Wedo, sem á Heimkaup, Hópkaup og Bland.is, tapaði hálfum milljarði króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í uppgjöri Skeljungs fyrir síðasta ár en Skeljungur á 34% hlut í Wedo. Tap Wedo jókst milli ára en félagið tapaði 222 milljónum árið 2018.
Skeljungur greiddi 280 milljónir króna fyrir þriðjungshlut í Wedo árið 2017. Bókfært virði eignarhlutarins nemur nú 87 milljónum króna en var 211 milljónir króna í árslok 2018.Tap Skeljungs af hlutdeildarfélgum hækkaði úr 12 milljónum í 131 milljón milli ára.
Mbl.is greindi frá því í október að 300 milljónir hefðu verið lagðar í Wedo með hlutafjáraukningu og fjármögnun. Jón Diðrik Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Skeljungs, bætti þá verulega við hlut sinn í Wedo og varð jafnframt stjórnarformaður Wedo.
Sjá einnig: Skeljungur veðjar á netverslun
Hlutafjáraukningunni var þá ætlað að styðja við vöxt félagsins. „Heimkaup.is byrjaði að selja matvöru fyrir tæpu ári og hefur vöxturinn verið gríðarlega mikill. Núverandi vöruval í matvörunni er rúmlega 5.000 vörunúmer og er stefnt á að tvöfalda úrvalið og fara yfir 10.000 vörunúmer á næstu mánuðum,“ hafði Mbl.is eftir Guðmundi Magnasyni, forstjóra Wedo.