Kröfum Icelandair Group um að felldur verði úr gildi úrskurður Ríkisskattstjóra dags. 18. desember 2013 hefur verið hafnað samkvæmt úrskurði yfirskattanefndar sem dagsettur er 15. apríl síðastliðinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Í úrskurði Ríkisskattstjóra var gjaldfærður fjármagnskostnaður gjaldárin 2008-2012 lækkaður með vísan til dóms Hæstaréttar í máli nr. 555/2012 frá 28. febrúar sl. (Toyota á Íslandi ehf. gegn íslenska ríkinu). Þetta þýðir að yfirfæranlegt tap Icelandair Group hf. minnkar um allt að 6,4 milljarða króna.

„Stjórnendur Icelandair Group hf. munu yfirfara forsendur yfirskattanefndar og meta hvort að skjóta eigi málinu til Héraðsdóms Reykjavíkur. Ef málið tapast að fullu fyrir dómstólum þá getur eigið fé félagsins lækkað um allt að 1,3 milljarða króna (9,6 milljón USD),“ segir í tilkynningu.