Eignir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Hannesar Smárasonar á Íslandi verða kyrrsettar í tengslum við rannsókn skattayfirvalda á þeim tveim og félögum sem þeir stjórnuðu, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Eignirnar sem kyrrsettar verða eru taldar mörg hundruð milljóna króna virði.

Heimildir Viðskiptablaðsins herma að eignir fleiri úr hópi hinna svokölluðu útrásarvíkinga munu verða kyrrsettar af skattayfirvöldum á næstunni. Þær heimildir ríma við orð Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi síðastliðinn föstudag. Þar var hann spurður hvort hann ætlaði að aðhafast eitthvað til að koma í veg fyrir að helstu gerendur í efnahagshruninu kæmust yfir fyrirtæki sín að nýju.

Steingrímur svaraði því til að „skattrannsóknaryfirvöld eru í viðamiklum rannsóknum sem tengjast mörgum þessara sömu aðila og það er ekkert ólíklegt að skatturinn verði á undan að hefja mál og jafnvel kyrrsetja eignir.“

Viðskiptablaðið greindi einnig frá því í mars að yfir þúsund einstaklingar gætu átt von á því að fá bréf um endurákvörðun skatts vegna afleiðuviðskipta sem gerð voru á árunum 2006 til 2008.

_____________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum og þeir sem ekki hafa lykilorð geta sótt um það hér .