Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,9% í september síðastliðnum frá fyrri mánuði. Greining Íslandsbanka segir að þessa hækkun megi að öllu leyti rekja til 2,5% hækkunar á verði íbúða í fjölbýli, sem vega mun meira í vísitölunni en sérbýlin.

„Í raun hefur svo mikil hækkun á íbúðum í fjölbýli ekki orðið á milli mánaða síðan í maí árið 2011. Allt önnur þróun varð á verði sérbýla á sama tíma, sem lækkuðu á milli mánaða um 2,5%. Þetta er í fyrsta sinn síðan í byrjun árs sem verð sérbýla lækkar á milli mánaða, og í raun hefur lækkunin ekki orðið eins mikil og nú síðan um mitt árið 2010. Þó ber hér að hafa í huga að talsverðar sveiflur eru í mælingum á milli mánaða og betra að horfa í þróunina til lengri tíma þegar greina á hvert markaðurinn er að fara. Þetta má sjá tölum sem Þjóðskrá Íslands tekur saman um vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu, og birti undir lok síðustu viku,“ segir í Greiningu Íslandsbanka.

Í september í fyrra hafði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 0,2% frá fyrri mánuði, og fer 12 mánaða hækkunartakturinn á milli ágúst og september sl. þar með úr 6,8% í 7,0%. Í september sl. mældist verðbólga 3,9%, og hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu þar með hækkað um 3,0% að raunvirði síðasta árið.

Greining Íslandsbanka bendir á að ívið meiri hækkun hafi orðið á verði íbúða í fjölbýli en verði á sérbýlum á þessu tímabili, eða um 8,8% á móti 2,3% að nafnverði. Í raun megi sjá að verðþróun á sérbýlum nái ekki að vega upp á móti þeirri hækkun sem orðið hefur á verðlagi hér á tímabilinu, en að raunvirði hefur raunverð sérbýla lækkað um 1,6% á sama tímabili og raunverð íbúða í fjölbýli hefur hækkað um 4,8%.