Eigur Ponzi-svindlarans Bernard Madoff verða seldar á uppboði í New York næstkomandi laugardag. Hlutirnir voru áður í íbúð Madoffs í Upper East Side hverfi New York.

Madoff var dæmdur árið 2009 fyrir að svindla á þúsundum fjárfesta með svokölluðu Ponzi-svindli. Hann var dæmdur til 150 ára fangelsisvistar.

Á vef Guardian má sjá nokkra af þeim munum sem boðnir verða upp næstkomandi laugardag.