Eimskip hefur keypt 52,5% hlut í akstursfyrirtækinu E.T.S. B.V. (European Transport Services) sem staðsett er í Rotterdam í Hollandi.

Frá þessu er greint á vef Eimskips en þar kemur fram að fyrirtækið hafi verið stofnað til að annast akstursþjónustu fyrir Eimskip innan Benelux landanna og til nærliggjandi landa. Félagið sérhæfir sig í flutningi á frystigámum en býður einnig annars konar akstursþjónustu, svo sem þungaflutninga og aðra akstursþjónustu sérsniðna að þörfum viðskiptavina.

Fram kemur að bílafloti fyrirtækisins samanstendur af 15 bílum sem merktir eru Eimskip. Meirihluti bílanna er búinn svokölluðu T.R.S. kerfi sem er umhverfisvænt kerfi þar sem vél bílsins framleiðir rafmagn fyrir frystigáminn með mun minni útblæstri en kemur frá hefðbundnum vélum frystigáma.

Þá kemur einnig fram að kaupin á E.T.S. B.V. munu ekki hafa veruleg fjárhagsleg áhrif á rekstur Eimskips.