Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 0,8% frá því opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni klukkan 10 í morgun og stendur nú þegar þetta er skrifað, kl. 10:35 í 3.939 stigum.

Úrvalsvísitalan stóð í stað við lok markaða í gær og en hefur lækkað jafnt og þétt nú fyrst mínúturnar í dag.

Á myndinni hér til hliðar má sjá helstu hækkanir og lækkanir einstakra félaga en aðeins eitt félag, Föroya banki [FO-BANK] hefur hækkað í morgun.

Velta með hlutabréf er um 1,8 milljarðar. Þar af eru tæpar 780 milljónir með bréf í Landsbankanum [ LAIS ], um 650 milljónir með bréf í Kaupþing [ KAUP ], um 200 milljónir með bréf í Straum [ STRB ] og tæpar 170 milljónir með Glitni [ GLB ] en nokkuð minni velta er með bréf í öðrum félögum og engin velta í öðrum.

Krónan hefur veikst um 0,2% í morgun og er gengisvísitalan nú 168,4 stig.