Ný skrifstofa Eimskips á Ítalíu verður opnuð 1. nóvember, segir í tilkynningu. Starfsemi Eimskips á Ítalíu hefur til þessa farið fram í gegnum umboðsaðila félagsins Thos. Carr í Mílan, en frá og með 1. nóvember munu starfsmenn þess félags heyra undir Evrópusvið Eimskips.

Opnun skrifstofu á Ítalíu er liður í markvissri uppbyggingu Eimskips í Evrópu. Meðal helstu áhersluatriða á þessari nýjustu skrifstofu innan samstæðu Eimskips má nefna umboðsþjónustu fyrir siglingakerfi félagsins, styttri siglingar (short sea), hitastýrða flutninga og alhliða flutningsmiðlun um allan heim.

Framkvæmdastjóri Eimskips á Ítalíu er Roberta Magillo.