Einkavæðingarnefnd Serbíu greindi frá því nýlega að ákveðið hefði verið að framlengja tilboðsfrest í 65% hlut ríkisins í næststærsta símafyrirtæki landsins, Telekom Srpske, en fjárfestingafélagið Novator hefur keypt útboðgögn í tengslum við hugsanleg kaup, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins.

Tilboðsfresturinn hefur verið framlengdur um mánuð, til 3. nóvember og segir einkavæðingarnefndin ástæðuna mikinn áhuga fjárfesta á félaginu. Talið er að ellefu aðilar hafi óskað eftir gögnum um Telekom Srpske, sem er í Bosníu í héraðinu Srpske og stjórnað er af Serbíu.

Einkavæðingarnefnd Serbíu greindi frá áætlunum um sölu á hlut sínum í fyrirtækinu í ágúst síðastliðnum og gerir ráð fyrir að fá um 400 milljónir evra, sem samsvarar tæplega 34,5 milljörðum króna, fyrir eignarhlutinn. Heildarhagnaður félagsins jókst um 23% á fyrstu sex mánuðum ársins 2006 í 41,25 milljónir marka (21 milljón evra), en heildartekjur námu 167 milljónum marka.

Auk Novators er talið að Telekom Serbia, France Telecom, Mobilkom Austria, ungverska símafyrirtækið Magyar Telekom, rússneska símafélagið Sistema, norska félagið Telenor, svissneska félagið Valiva og PlanetSky frá Kýpur séu hugsanlegir kaupendur að hlut ríkisins í fyrirtækinu. Einnig hefur finnska símafyrirtækið Elisa, sem er að hluta til í eigu Novator Finland, verið orðað við Telekom Srpske. Hins vegar segja heimildarmenn Viðskiptablaðsins að ólíklegt sé að Novator og Elisa keppi um félagið, en útiloka ekki að félögin muni starfa saman að kauptilboði.

Telekom Srpske er með um 35% markaðshlutdeild á landsíma- og farsímamarkaði í Bosníu. Tvö önnur símafyrirtæki eru í Bosníu. Stærsta félagið er BH Telecom, en símafyrirtækið HT Mostar er heldur minna en Telekom Srpske. BH Telecom og HT Mostar eru stærst í króatíska hluta Bosníu, þar sem um 66% íbúa landsins býr. Einnig hefur verið rætt um að einkavæða BH Telecom.

Novator hefur lagt áherslu á fjárfestingar í símafélögum, sérstaklega í Mið- og Austur-Evrópu. Félagið hefur tryggt sér kaupréttinn að 65% hlut í búlgarska símafyrirtækinu Bulgarian Telecommunicatons Company (BTC), fjárfest í pólska símafyrirtækinu Netia og gríska fjarskiptafyrirtækinu Forthnet. Tékkneska fjárskipatafyrirtækið Cescke Radiokommunicace (CRa) er í eigu Novators. CRa gerði tilraun til að kaupa 75% hlut ungverska ríkisins í margmiðlunarfyrirtækinu Antenna Hungaria í fyrra.