Félags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað Elínu Oddnýju Sigurðardóttur í stjórn Íbúðalánasjóðs í stað Drífu Snædal, sem sagði sig nýverið úr stjórn sjóðsins en hún mun bjóða sig fram til forseta ASÍ á þingi sambandsins næsta haust.

Elín Oddný Sigurðardóttir er varaborgarfulltrúi Vinstri Grænna í Reykjavík.