Um síðustu helgi kynnti ELLA nýja fatalínu á Reykjavík Fashion Festival. Elínrós Líndal, listrænn stjórnandi og eigandi, segir að sér hafi fundist mikilvægt að sýna hamingju með nýju línunni. Til þess fékk hún aðstoð frá nokkrum börnum.

Elínrós er í viðtali í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun þar sem hún segir frá rekstri fyrirtækisins og hugmyndafræðinni bakvið hönnunina.