Flugfélagið Emirates Airline mun fljótlega ganga frá samningum við flugvélaframleiðandann Airbus, um skaðabætur vegna fjárhagstjóns sem flugfélagið varð fyrir vegna tafa á afhendingu á A380 þotum, segir í frétt Dow Jones.

Emirates er stærsti kaupandi A380 þotna og hefur pantað rúmlega 40 þotur, en félagið mun fá sína fyrstu þotu afhenta í ágúst 2008, rúmum tveimur árum of seint.