Stjórn Marel Food Systems hf. leggur til við aðalfund Marel Food Systems hf. að greiða ekki út arð vegna reikningsársins 2008. Einnig er lagt til að stjórnarlaun vegna ársins 2009 lækki að meðaltali um 20%.

Er gerð tillaga um að þau verði: Stjórnarmenn fá 1.600 evrur hver á mánuði, varaformaður fær 2.400 evrur á mánuði og stjórnarformaður 4.000 evrur á mánuði.  Stjórnarlaun skulu greidd 15. dag hvers mánaðar.