Vogir sem eru notaðar til að kaupa og selja gull eru löggildingaskyldar. Með því er verið að tryggja að vogirnar vigti rétt. Hjá Neytendastofu er núna í gangi eftirlit með vogum sem eru notaðar í viðskiptum við að kaupa og selja gull. Í úrtakinu reyndist enginn vog vera löggilt. Neytendastofa hvetur þá sem eiga í slíkum viðskipti að athuga hvort þær vogir sem eru notaðar séu með gilda löggilding.

Þá bendir Neytendastofa á að hægt er að sjá á hreinleikstimpli skartgripsins hversu mikið hlutfall er af hreinu gulli í vörunni. Sem dæmi ef hreinleikastimpillinn er 585 þá inniheldur varan 58,5% af hreinu gulli.