Icelandair Group sendi í morgun tilkynningu á erlenda fjölmiðla vegna gjaldþrots Sterling.

Í tilkynningunni er ítrekað að Sterling og Iceland Express er í eigu fjárfestingafélagsins Fons og hluthafar þess eigi engin bréf í Icelandair Group.

Þá er tekið fram að engin tengsl séu á milli Fons og Icelandair Group auk þess sem engin tengsl séu á milli Sterling í Danmörku og Icelandair Group.