Einkafjárfestingasjóðurinn Kohlberg Kravis Roberts & Co (KKR) hefur keypt greiðslukorta- og greiðslumiðlunarfyrirtækið First Data Corp fyrir um 25,6 milljarða Bandaríkjadala. Um er að ræða enn eina skuldsettu yfirtökuna á rótgrónu bandarísku fyrirtæki. KKR mun borga eigendum First Data 34 dali á hlut eða 26% yfirverð sé miðað við gengi bréfa við lok viðskipta á föstudag.