Icelandair flutti rúmlega 136.500 þúsund farþega í apríl sl., sem er 19% fjölgun á milli ára í aprílmánuði. Framboð félagsins í mánuðinum jókst um 19% á milli ára.

Þá hefur félagið flutt um 442 þúsund farþega það sem af er þessu ári, sem er 18% aukning á milli ára. Á sama tíma jókst framboð félagsins um 13%.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair í fyrra nam tæplega 1,75 milljón farþega, samanborið við tæplega 1,5 milljón farþega árið 2010 og tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009. Farþegafjöldi félagsins jókst þannig um 18% á milli ára  fyrra.

Sætanýting Icelandair í apríl var 81,5% og jókst um 2% á milli ára. Þetta er í fyrsta sinn í sögu félagsins sem sætanýting fer yfir 80 prósentustig í aprílmánuði. Þá hefur sætanýtingin jafnframt aukist um 3,7% á milli ára það sem af er þessu ári. Sætanýtingin á síðasta ári var um 79% og jókst um 1% á milli ára. Það var jafnframt besta sætanýtingin í sögu félagsins.

Fækkun farþega hjá Flugfélagi Íslands

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fækkaði um 4% á milli ára í apríl en félagið flutti tæplega 28 þúsund farþega í mánuðinum. Framboð félagsins dróst saman um 7% á milli ára í apríl. Sætanýtingin nam um 68% og stóð í stað á milli ára en hefur þó aukist um 1% á milli ára það sem af er ári.

Flugfélag Íslands flutti um 353 þúsund farþega á síðasta ári sem þýðir 3% fjölgun farþega á milli ára. Sætanýting félagsins jókst um 1% á milli ára í fyrra.

Nýting flugflota sem nýttur er til útleigu en er í eigu Icelandair Group dróst saman um 14% á milli ára í apríl og hefur þannig dregist saman um 7% á milli ára það sem af er þessu ári. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic. Þetta má að hluta til rekja til þess að fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra.

Fraktflug á vegum Icelandair Cargo jókst um 30% á milli ára í apríl og hefur aukist um 22% á milli ára það sem af er þessu ári.

Þá jókst nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar um tæp 3% á milli ára í apríl og hefur þá aukist um tæp 8% það sem af er ári. Nýting hótelherbergja samstæðunnar á síðasta ári jókst um tæp 2% á milli ára. Framboð hótelherbergja á vegum samstæðunnar jókst um 20% á milli ára í apríl og hefur aukist um 15% það sem af er ári.