Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar hækkaði um 0,5% í 3,7 milljóna króna viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Þá hélt gengi hlutabréfa fasteignafélagsins Regins áfram að hækka. Þau fóru upp um 0,21% í veltu upp á eina milljóna króna í dag og endaði gengið í 9,58 krónum á hlut.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Marel um 0,36% í tæplega 50 milljóna króna veltu.

Úrvalsvísitalan þokaðist lítillega upp á við, um 0,01% og endaði hún í 1.009 stigum. Heildarvelta á hlutabréfamarkaði nam 69,2 milljónum króna.