Gengi hlutabréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar lækkaði um 1,15% í Kauphöllinni í dag. Afar lítið viðskipti voru með hlutabréf félagsins eða þrjár milljónir króna. Á sama tíma lækkaði gengi bréfa VÍS um 0,87%, TM um 0,67% og Eimskips um 0,45%.

Á sama tíma hækkaði gengi bréfa Haga um 0,61% og Regins um 0,22%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,19% og endaði hún í 1.121 stigi. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam rúmum 572 milljónum króna.