Stjórnendur Icelandair Group segja að á þessu stigi sé ekki hægt að áætla fjárhagstjón Icelandair Group vegna aðgerða flugmanna í vinnudeilunni. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar í tilefni af því að í nótt var skrifað undir nýjan samning.

Í tilkynningunni kemur fram að á samningstímanum munu Icelandair Group og Félag íslenskra atvinnuflugmanna vinna sameiginlega að langtímasamningi. Icelandair Group segir að samningurinn sé í meginatriðum í takt við þá samninga sem gerðir hafa verið á vinnumarkaði á Íslandi á árinu.

Samningurinn fer nú í kynningu hjá FÍA og rafræna kosningu sem tekur sjö daga.