Gengi krónunnar hefur lækkað í morgun um ríflega 0,2% í fremur litlum viðskiptum. Er þetta fjórði dagurinn í röð sem gengi krónunnar lækkar.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbaka en þar kemur jafnframt fram að dagslokagildi krónunnar var það lægsta á árinu í lok dags í gær.

Evran stendur nú í tæplega 182,5 krónum en var í 178,4 á föstudaginn. Lækkun krónunnar gagnvart evrunni nemur því 2,3% á þessum fjórum dögum.

Í Morgunkorni kemur fram að Seðlabankinn hefur verið lítið inni á markaðinum í þessum mánuði og einungis einu sinni gripið inn í hann með sölu á gjaldeyri. Til samanburðar greip bankinn tíu sinnum inn í markaðinn í júlí og nítján sinnum í júní.

„Erfitt er að lesa í þessa breyttu hegðun Seðlabankans en hugsanlega telur bankinn lækkun krónunnar síðustu daga vera litla ógn við stöðugleika krónunnar og/eða að hann er að spara gjaldeyriforðan núna þegar óvissa er nokkur um frekari uppbyggingu hans með erlendum lántökum,“ segir í Morgunkorni.