Erla er viðskiptafræðingur, Cand. Oecon, frá Háskóla Íslands. Frá því hún kom til starfa í Seðlabankanum árið 2010 hefur hún starfað sem forstöðumaður í reikningshaldi og sem staðgengill framkvæmdastjóra fjárhagssviðs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands .

Frá ársbyrjun 2015 hefur Erla verið starfandi framkvæmdastjóri fjárhagssviðs Seðlabankans. Áður starfaði Erla í MP-banka sem sérfræðingur í fjárhagsdeild og einnig hefur hún starfað í reikningshaldi og samstæðueiningu fjárhagsdeildar Íslandsbanka.

Fjárhagssvið hefur umsjón með fjárhagsupplýsingum bankans og félaga í hans eigu.