Erlendu flugfélögin auka við hlutdeild sína í flugumferð um Keflavíkurflugvöll og stendur hún nú í 26,1% í nóvember að því er kemur fram á vef Túrista.is . Svo hátt hefur vægi þeirra ekki áður samkvæmt talningum Túrista sem ná aftur til ársins 2011. Þetta gerist þrátt fyrir að íslensku flugfélögin séu að bæta töluvert við sig.

Í nóvember í fyrra stóðu erlendu flugfélögin fyrir um 23% af umferðinni en stóran hluta af aukningunni í ár má rekja til easyJet sem fjölgaði sínum ferðum frá Bretlandi um 50 talsins og litlu minni var viðbótin hjá Wizz air og British Airways.

Icelandair fjölgaði brottförum sínum um ríflega tíund í síðasta mánuði þá hefur hlutdeild félagsins en þrátt fyrir það hefur hlutdeild þeirra í flugumferðinni um Keflavíkurflugvöll, minnkað töluvert frá því í nóvember í fyrra. Þá stóð félagið fyrir um helmingi allra áætlunarferða en núna er hlutfallið komið niður í 44% samkvæmt daglegum talningum Túrista. Á sama tíma hefur ferðum WOW air fjölgað um 40 af hundraði og hlutdeild félagsins farið upp í 27,8%. Umsvif Air Iceland Connect hafa líka aukist en frá Keflavíkurflugvelli býður félagiði upp á flug til Akureyrar og Belfast og Aberdeen. Ferðirnar til síðarnefndu borganna eru í samstarfi við systurfélagið Icelandair.

Þá segir einnig í umfjöllun Túrista að ef rekstur Airberlin hefði ekki stöðvast í lok október hefði bilið milli erlendu og íslensku flugfélaganna minnkað enn meira því félagið stóð fyrir um fjórum ferðum í viku til Íslands í nóvember í fyrra.