Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað hérlendis á undanförnum árum og svo var einnig árið 2007. Þann 1. janúar 2008 voru skráðir hérlendis 21.434 erlendir ríkisborgarar. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda var þá 6,8% samanborið við 6% ári áður

Erlendum ríkisborgurum fjölgaði úr 18.563 í 21.434 árið 2007. Það er 15,5% fjölgun á milli ára. Það er þó minni fjölgun en tvö síðustu ár en erlendum ríkisborgurum fjölgaði um 34,7% árið 2006 og 29,5% 2005.

Hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda á Íslandi er nú hærra en á hinum Norðurlöndunum en árið 2006 var hlutfall erlendra ríkisborgara næst hæst í Svíþjóð, 5,4%.

Hafa ber þó í huga að á hinum Norðurlöndunum er lengri hefð fyrir komu innflytjenda og því fleiri sem fengið hafa ríkisfang í nýja landinu. Fjölmennastir erlendra ríkisborgara hér á landi voru Pólverjar (8.488), Litáar (1.332), Þjóðverjar (984) og Danir (966), líkt og verið hefur undanfarin ár.

Þessum tölum má þó taka með þeim fyrirvara að það getur dregist að útlendingar sem fá dvalarleyfi séu skráðir hjá þjóðskrá og á sama hátt geta liðið nokkrir mánuðir þar til einstaklingar sem flytjast af landi brott eru felldir úr íbúaskrá, segir á vef Hagstofu.

Fram til ársins 2003 voru konur jafnan fjölmennari en karlar í hópi erlendra ríkisborgara. Síðan 2004 hafa karlar hins vegar verið mun fjölmennari en konur meðal erlendra ríkisborgara. Í árslok 2007 voru karlar með erlent ríkisfang 8,1% allra karla en konur með erlent ríkisfang 5,5% allra kvenna.