Eurofima tilkynnti í dag um þriggja milljarða króna jöklabréfaútgáfu á 10% vöxtum og lokagjalddagi er í nóvember 2008, að sögn greiningardeildar Landsbankans.

?Krónan styrktist um 0,7% fyrri hluta dags, en styrkingin gekk að nokkru til baka. Lokagildi vísitölunnar var 117,9 og krónan því 0,4% sterkari en við lokun í gær," segir greiningardeildin.