Hlutabréf lækkuðu í Evrópu í dag en það voru helst bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins að sögn Reuters fréttastofunnar.

Markaðir hófu að lækka strax við opnun í morgun en tóku frekari dýfu niður á við undir lok dags.

Þannig lækkaði FTSEurofirst 300 vísitalan um 6,3% í dag en lengst fram eftir degi hafði vísitalan lækkað um 3%.

Þá hefur vísitalan lækkað um 46% það sem af er ári eftir að hafa hækkað fimm ár í röð.

Eins og fyrr segir voru það bankar og fjármálafyrirtæki sem leiddu lækkanir dagsins. Þannig lækkaði Standard Chartered Bank um 14,7%, UBS um 12%, Deutsche Bank um 10,2% og Barclays um 6,7% svo dæmi séu tekin.

Í Lundúnum lækkaði FTSE 100 vísitalan um 5,2%, í Amsterdam lækkaði AEX vísitalan um 6,8% og í Frankfurt lækkaði DAX vísitalan um 5,9%.

Í París lækkaði CAC 40 vísitalan um 5,6% og í Sviss lækkaði SMI vísitalan um 5%.

Í Kaupmannahöfn lækkaði OMXC vísitalan um 2,4%, í Stokkhólmi lækkaði OMXS vísitalan um 5% og í Osló lækkaði OBX vísitalan um 8,7%.