Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Árborgar, hefur tilkynnt samstarfsmönnum sínum í Sjálfstæðisflokknum að hann fari ekki í framboð í bæjarstjórnarkosningum í vor. Þetta kemur fram á vef Sunnlenska fréttablaðsins, sunnlenska.is .

Eyþór segir í samtali við blaðið að nú sé ágætur tímapunktur til að hleypa nýju fólki að, hann hafi verið oddviti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn í átta ár og formaður bæjarráðs á kjörtímabilinu sem lýkur í vor.

Sjálfstæðisfélögin í Árborg hafa skipað kjörstjórn til að koma með tillögu um hvernig valið verði á listann næsta vor. Að sögn blaðsins eykur ákvörðun Eyþórs líkur á prófkjöri.