Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur úrskurðað að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu beri að afhenda Félagi atvinnurekenda (FA) aðgang að gögnum og fundargerðum ráðgjafarnefndar um inn- og útflutning landbúnaðarvara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FA.

Málið er tilkomið vegna tillögu nefndarinnar til ráðherra um að gefa út opinn innflutningskvóta á ógerilsneyddri, lífrænni mjólk vorið 2014. Mjólkurbúið Kú hafði óskað eftir kvótanum þar sem slíkt hráefni var ekki í boði á innanlandsmarkaði. FA óskaði eftir umræddum gögnum sem lögbundinn umsagnaraðili um tillögur og ákvarðanir nefndarinnar.

Ráðuneytið hafði fallist á að afhenda FA hluta þeirra gagna, sem um ræddi, samtals um 30 skjöl, en neitaði að afhenda önnur, sem haldið var fram að innihéldu upplýsingar um viðskiptakjör og vörðuðu viðskiptahagsmuni aðila.

Samkvæmt tilkynningunni lagðist Eimskipafélagið gegn því að upplýsingar um tilboð sem Kú var gert í flutninga yrðu afhentar. Úrskurðarnefndin taldi ekki að þar væru þeir hagsmunir í húfi að þeim væri hætta búin þótt FA fengi aðgang að gögnunum. Var því lagt fyrir ráðuneytið að afhenda níu fundargerðir ráðgjafarnefndarinnar, auk fjögurra tölvupósta og tilboðs Eimskips.

„Félag atvinnurekenda fagnar þessari niðurstöðu og telur að með henni sé gefið mikilvægt fordæmi um að stjórnsýsla ráðgjafarnefndarinnar verði gegnsærri þegar fjallað er um beiðnir fyrirtækja um innflutningskvóta á búvörum á grundvelli skorts á þeim innanlands,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. „Sá fjöldi gagna sem er undir í þessu máli sýnir hins vegar hversu flókið og þungt ferlið er, sem fyrirtæki þurfa að ganga í gegnum til að fá jafnsjálfsagðar heimildir.“