Fjármálaeftirlitið hefur veit Milestone ehf. og Þætti eignarhaldsfélagi ehf., heimild til þess að fara sameiginlega með virka eignarhluti allt að 25% í Glitni banka hf. og yfir 50% í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.

Í tilkynningu frá Fjármálaeftirlitinu kemur fram að framangreind heimild er veitt með vísan til laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, annars vegar og laga nr. 60/1994, um vátryggingastarfsemi hins vegar.