Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst töluvert í vikunni miðað við vikuna áður, eða um 51%.

Þannig nam veltan nú í vikunni 2.237 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands en í vikunni á undan nam veltan 1.479 milljónum króna. Rétt er að taka fram að meðaltal á viku nemur, það sem af er ári, 1.300 milljónum króna.

Fjögurra vikna meðalvelta eykst nú þriðju vikuna í röð en í þar síðustu viku nam veltan rúmum 5 milljörðum króna sem er heldur óvenjulegt.

Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta nú 2.490 milljónum króna og hefur aldrei verið meiri á árinu. Þá hefur fjögurra vikna meðalveltan hækkað um rúman 1,1 milljarð á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 108% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 80% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta hækkar einnig á milli vikna eða um rúmar 60 milljónir króna. Þannig nemur 12 vikna meðalvelta nú 1.770 milljónum króna og hefur ekki verið svo há í 12 mánuði. Tólf vikna meðalvelta hefur nú aukist um 9% á milli ára en þetta er í fyrsta skipti frá því í janúar 2008 sem 12 vikna meðalvelta eykst á milli vikna. Á sama tíma í fyrra hafði 12 vikna meðalvelta dregist saman um 75% á milli ára.

Til gamans má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er í dag 1.260 milljónir króna og hækkar um 22 milljónir á milli vikna. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 2.258 milljónum króna og hefur því dregist saman um 44% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 58 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 50 samninga í vikunni áður. Alls hefur 39 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku á þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar þó nokkuð á milli vikna eða um 9 milljónir króna. Þannig nam meðalupphæð á hvern samning í vikunni 38,6 milljónum króna en meðalupphæð á hvern samning frá áramótum er nú 33,5 milljónir króna.