Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi Hæstaréttardómari, segir umræður um kaupauka til starfsmanna eignarhaldsfélaga gömlu bankanna stórbrotnar. Þjóðin sé að fara af hjörunum og bæði fjölmiðlar og ráðamenn lýsi hneykslan sinni. Kemur þetta fram í grein sem hann ritar í Morgunblaðið í dag.

„Hvað er hér á seyði? Þessi þrjú félög eru að langmestu leyti í eigu erlendra aðila, þeirra sömu og áttu kröfur í slitabú bankanna þriggja og þjóðin kallaði þá „hrægamma“. Nú hafa þeir ákveðið að verja sínu eigin fé (þ.e. fé félaganna þriggja)  til þess að hvetja starfsmennina til að standa sig við störf í þeirra þágu. Þetta er auðvitað bara hagstætt fyrir íslensku þjóðina því að þeir íslensku starfsmenn sem njóta greiðslna samkvæmt þessum ákvörðunum munu greiða af þeim skatta hérlendis.“

Jón Steinar að þessar tekjur hefðu ekki skilað sér í ríkissjóð ef eigendur bankanna hefðu flutt féð úr landi í fyllingu tímans.

„En landinn er samur við sig. Af einhverjum ástæðum virðist meirihluti manna vilja frekar að hrægammarnir flytji þetta fé úr landi en að íslenskir menn fái lítinn hluta þess greiddan í þóknun fyrir vel unnin störf í þágu gammanna. Af hverju ætli það sé?“