UK Fisheries, félag í sameiginlegri eigu Samherja og hollenska félagsins og Parlevliet Van Der Plas, hefur samþykkt að kaupa breska sjávarútvegsfélagið J. Marr Ltd., segir í fréttatilkynningu.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Í sameiginlegri fréttatilkynningu segir að kaupin endurspegli samþjöppun í geiranum, sem orðið hefur til vegna aukinnar samkeppni á alþjóðlegum mörkuðum. Bæði félögin eru staðsett í bresku hafnarborginni Hull.