Gosdrykkjaframleiðandinn Refresco Holding, sem er 49% í eigu Stoða (áður FL Group), hefur skrifað undir samkomulag um að yfirtaka hollenska fyrirtækið Schiffers Food. Síðarnefnda fyrirtækið framleiðir gosdrykki og vatn undir vörumerkjum viðskiptavina sinna. Velta Schiffers Foods á yfirstandandi rekstrarári er áætluð um 8 milljarðar króna.

Í tilkynningu frá Stoðum segir að frá upphafi hafi markmið kaupanna á Refresco verið að vinna að uppbyggingu fyrirtækisins með innri vexti og yfirtökum á félögum sem starfa á nýjum mörkuðum sem og á heimamörkuðum félagsins.  „Síðastliðin tvö ár hafa Stoðir aðstoðað Refresco við fjórar yfirtökur en Refresco hefur keypt Kentpol í Póllandi, Histogram í Bretlandi, Sun Beverages Company í Frakklandi, Hollandi og Belgíu og Nuits Saint-Georges í Frakklandi,“ segir í tilkynningu.

„Refresco er stærsti framleiðandi Evrópu á sviði drykkjarvara undir eigin merkjum viðskiptavina.  Félagið var stofnað árið 2000 og starfrækir nú 18 verksmiðjur víðs vegar um Evrópu þar sem vinna um 2.200 starfsmenn.  Árið 2007 námu tekjur félagsins um 950 milljónum evra, sem jafngilti um 87 milljörðum króna m.v. gengi evru í árslok 2007,“ segir enn fremur.

Stoðir, þá FL Group, keyptu Refresco árið 2006.