Slitastjórn Kaupþings
Slitastjórn Kaupþings
© Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag)

Lögmannsstofa Feldísar L. Óskarsdóttur hdl. ehf. skilaði 25,6 milljóna króna hagnaði í fyrra, samkvæmt ársreikningi félagsins.

Hagnaður ársins 2012 nam 26,1 milljón króna. Félagið er í eigu Feldísar Óskarsdóttur, sem situr í slitastjórn Kaupþings.

Rekstrarhagnaður félagsins lækkaði úr 32,1 milljón króna árið 2012 í 30,8 milljónir í fyrra. Eignir félagsins námu um síðustu áramót 73,4 milljónum króna og höfðu aukist um 14,1 milljón króna milli ára.

Stærstur hluti eigna er handbært eigið fé, en það nam um síðustu áramót 47,8 milljónum króna. Skuldir námu um áramótin 12,2 milljónum króna og eigið fé er því um 61,2 milljónir. Þar af er óráðstafað eigið fé 61,6 milljónir króna.