Fjárfestar slógust um hlutabréf í kappaksturs- og lúxusbílafyrirtækinu Ferrari sem var skráð á markað í dag.

Gengi hlutabréfanna opnaði í 60 dölum á hlut í NYSE í dag. Bréfin hafa hið skemmtilega kennimerki RACE, sem endurspeglar vel starfsemi fyrirtækisins.

Eins og áður segir var eftirspurn mjög mikil. Meira en 12 milljón bréf skiptu um hendur á fyrsta hálftímanum, og gengið hækkaði um rúman dal áður en það lækkaði svo aftur.

Framleiðandinn lagði nokkrum glæsibifreiðum fyrir utan kauphöllina í morgun, og hópur fólks safnaðist kringum 488 GTB módelið þeirra sem kemst í hundraðið á þremur sekúndum.