Nýr aðstoðarseðlabankastjóri verður skipaður þann 1. júlí næstkomandi. Nefnd sem var skipuð af forsætisráðherra til að meta hæfni umsækjenda hefur sent frá sér álit. Í nefndinni sitja Friðrik Már Baldursson, prófessor við HR, Þórunn Guðmundsdóttir, hæstaréttarlögmaður og varaformaður bankaráðs SÍ og Eyjólfur Guðmundsson rektor HA. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu .
Nefndin skipti þeim ellefu umsækjendum sem valið stendur um niður í flokkana „mjög hæfir", „vel hæfir" og „hæfir". Í umsagnarferlinu kom í ljós að einn umsækjandi uppfyllti ekki almenn hæfnisskilyrði.
Þeir umsækjendur sem komust í flokkinn „mjög hæfir" eru:
- Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans.
- Guðrún Johnsen, lektor og doktorsnemi í hagfræði.
- Jón Þór Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri alþjóðasamskipta við SÍ.
- Rannveig Sigurðardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri hagfræði- og peningastefnusviðs SÍ.
- Þorsteinn Þorgeirsson, ráðgjafi seðlabankastjóra.
Umsækjendur í flokknum „vel hæfir" eru:
- dr. Tryggvi Guðmundsson, hagfræðingur sem starfar sem fulltrúi AGS í London.
- Vilhjálmur Bjarnason, hagfræðingur og fyrrverandi alþingismaður.
Í flokknum „hæfir" eru þeir:
- Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur hjá Viðskiptaráði Íslands.
- dr. Lúðvík Elíasson, starfsmaður SÍ.
- dr. Ólafur Margeirsson, sérfræðingur hjá Zurich.
- Stefán Hjalti Garðarsson, reikniverkfræðingur og frumkvöðull.