Í ágústmánuði var fiskafli íslenskra skipa rúmlega 119 þúsund tonn, sem er 4% aukning frá því í ágústmánuði síðasta árs.

Botnfiskaflinn var rúm 33 þúsund tonn en það er aukning um 28%, þar af var þorskaflinn 17 þúsund tonn í mánuðinum og jókst hann um 41% frá því á sama tíma fyrir ári. Flatfiskaflinn jókst um 25% og skel- og krabbadýraafli um 28% miðað við ágúst 2015.

Í uppsjávarafla varð samdráttur upp á 4%. Á föstu verðlagi var aflinn í ágúst í ár metinn 2,6% meiri en í ágúst í fyrra.

Ef horft er til síðustu 12 mánaða hefur heldaraflinn dregist saman um 294 þúsund tonn á milli ára, en það nemur þá 22% aflasamdrætti, en þar vegur samdráttur í uppsjávarafla þyngst.