Alls voru 1.685 fiskiskip á skrá hjá Samgöngustofu í lok árs 2014 og hafði þeim fækkað um ellefu frá árinu áður. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.

Fjöldi vélskipa var alls 773 og samanlögð stærð þerra um 85.653 brúttótonn. Vélskipum fækkaði um tíu á milli ára en stærð flotans minnkaði um 3.825 brúttótonn.

Togarar voru alls 49 og fækkaði um tvo frá árinu á undan. Heildarstærð togaraflotans var 57.444 brúttótonn og hafði minnkað um 2.717 frá árslokum 2013.

Opnir fiskibátar voru 863 og 4.239 brúttótonn að stærð. Opnum fiskibátum fjölgaði um einn á milli ára en heildarstærðin jókst um 69 brúttótonn.

Flest fiskiskip voru með skráða heimahöfn á Vestfjörðum í árslok 2014, alls 400 skip, en það eru tæp 23,7% fiskiskipaflotans. Næst flest, alls 323 skip höfðu heimahöfn skráða á Vesturlandi eða 19,2%. Fæst skip voru með skráða heimahöfn á Suðurlandi, 72 alls, en það samsvarar 4,2% af heildarfjölda fiskiskipa.