Bandaríska samheitalyfjafyrirtækið Watson er langt á veg komið með fjármögnun á yfirtöku á Actavis. Samkvæmt heimildum Reuters fréttastofu eru fjármálastofnanir áhugasamar um að fjármagna kaupin, alls um 6 milljarða dollara.

Bank of America Merrill Lynch er sagður vera sá banki sem líklegastur er til þess að fjármagna kaupin. Bankinn og Watson hafa áður átt í samstarfi.

Yfirtakan myndi sameina tvö af stærstu samheitalyfjafyrirtækjum heims. Samkvæmt heimildum Reuters er líklegt að tilkynnt verði um yfirtökuna fyrir lok aprílmánaðar.